Stefán Ragnar Guðlaugsson skrifar undir hjá Val

Stefán Ragnar Guðlaugsson skrifaði í dag undir samning við Knattspyrnufélagið Val . Stefán sem er miðvörur hefur verið lykilmaður hjá  Selfyssingum undanfarin ár en samningur hans rann út nú um áramótin. Þrátt fyrir ungan aldur, en Stefán er fæddur árið 1991, hefur hann leikið 94 leiki í deild og bikar og var fyrirliði Selfyssinga í Pepsi deildinni í sumar. Stefán hefur einnig leikið 9 leiki með yngri landsliðum Íslands.

Stefán hefur vakið athygli margar liða bæði hér heima og erlendis,  enda feykilega efnilegur.  Eins og komið hefur fram í fréttum mun Stefán Ragnar fara á mánudag til reynslu hjá norska félaginu Hönefoss og æfa með þeim næstu tvær vikurnar. Í kjölfarið kemur í ljós hvort Hönefoss hefur áhuga á að semja við Stefán, ef ekki mun Stefán spila með Valsmönnum í sumar.