U17 og U19 landslið kvenna í fótbolta

U17 og U19 ára landslið kvenna í fótbolta munu koma saman til æfinga helgina 12.-13.janúar næstkomandi. Að vanda eigum við hjá Val fulltrúa í þessum liðum og að þessu sinni eru hvorki meira né minna en 10 stúlkur úr Val á leiðinni til æfinga með þessum landsliðum.

Úlfar Hinriksson hefur valið eftirtaldar stúlkur á landsliðsæfingarnar U17;  Málfríður Anna Eiríksdóttir, nína Kolbrún Gylfadóttir, Þorgerður Einarsdóttir, Selma Dögg Björgvinsdóttir, Katla Rún Arnórsdóttir  og Sigrún Björk Sigurðardóttir.

í U19 ára landsliðið hafa þessar verið valdar; Berglind Rós Ágústsdóttir, Elín Metta Jensen, Hildur Antonsdóttir, Ingunn Haraldsdóttir og Svava Rós Guðmundsdóttir.

Við óskum þessum stúlkum til hamingju með árangurinn.