Stórleikur í N1 deild kvenna Valur - Fram

Laugardaginn 12.janúar eigast við í N1 deild kvenna Valur og Fram í stórleik umferðarinnar. Leikir þessara liða hafa í gegnum tíðina verið frábær skemmtun og spenna frá upphafi til enda. Leikurinn hefst kl.15:00 og hvetjum við alla Valsara til að fjölmenna og styðja stelpurnar.