Nicola Dokic skrifaði undir í dag

Nicola Dokic kom til landsins í gær (föstudag) og tók sína fyrstu æfingu í dag og greinilegt að nokkur eftirvænting var í stuðningsmönnum enda þó nokkrir mættir til að horfa á hans fyrstu æfingu. Stóð kappinn sig vel og skemmti hann mönnum vel með hnitmiðuðum skotum sínum. Þessi reynslumikli leikmaður hefur spilað á Spáni og núna síðast með liði Rauðu Stjörnunnar (Serbíu) og verður gaman að fylgjast með honum í deildinni.