Fríar æfingar í handbolta

Láttu handboltadrauminn rætast!Æfðu frítt á meðan HM stendur.
Valur er á meðal þeirra félaga sem í samstarfi við HSÍ bjóða grunnskólakrökkum að æfa frítt á meðan HM í handbolta stendur yfir.

Mótið fer fram dagana 12. - 27. janúar og því tilvalið fyrir alla krakka að mæta og prófa að æfa þessa þjóðaríþrótt okkar Íslendinga.  Það er alltaf líf og fjör á æfingum og krakkarnir skemmta sér konunglega, auk þess að fá frábæra hreyfingu.

Fyrir þá sem langar til þess að koma og prófa er einfaldast að finna æfingatímann fyrir viðeigandi aldur inni á valur.is og svo er bara að láta vaða