Guðný Jenný best í fyrri hluta N1 deildar kvenna

Í hádeginu í dag þriðjudaginn 22.janúar var valið úrvalslið fyrri hluta í N1 deild kvenna. Valskonur eiga þrjá fulltrúa sem eru Guðný Jenný, Dagný Skúladóttir og Þorgerður Anna Atladóttir. Þá var Guðný Jenný valin besti leikmaður fyrri hluta og þjálfari Vals, Stefán Arnarson var valinn besti þjálfarinn.