Valsstúlkur í úrslit Poweradebikarkeppni KKÍ

Valsstúlkur tryggðu sér í kvöld sæti í úrslitum Poweradebikarkeppni kvenna er liðið bar sigurorð af heimastúlkum í Hamri. Valsstúlkur leiddu allan leikinn örugglega og lokatölur voru 39-86. Valur mætir annaðhvort liði Snæfells eða Keflavíkur í úrslitaleik sem fer fram í Laugardalshöll 16.febrúar.