Blaðamannafundur í hádeginu

Handknattleiksdeild Vals boðar til blaðamannafundar í Lollastúku að Hlíðarenda, þriðjudaginn 29. janúar 2013, kl. 13.00.

Efni fundarins er að kynna til sögunnar nýjan þjálfara fyrir meistaraflokk karla á tímabilinu 2013 - 2015. Eins og fram hefur komið mun Patrekur Jóhannesson láta af störfum hjá Val að loknu yfirstandandi tímabili. Handknattleiksdeild Vals þakkar Patreki fyrir gott starf í þágu félagsins og hlakkar til áframhaldandi samstarfs á tímabilinu sem nú stendur sem hæst.

Við viljum hvetja íþróttafréttaritara landsins til þess að mæta til fundarins, sem verður að okkar mati afar áhugaverður, enda verður þar eins og áður sagði nýr þjálfari kynntur til sögunnar.

Með vinsemd og virðingu,

stjórn handknattleiksdeildar Vals,