Fram - Valur í N1 deild kvenna

Fimmtudaginn 31.janúar eigast við í N1 deild kvenna Fram og Valur. Leikurinn fer fram í Safamýri og hefst kl. 19:30. Þetta eru tvö af bestu liðum landsins undanfarin ár og ljóst að um hörkuleik verður að ræða. Við hvetjum alla Valsara til að fjölmenna í Safamýrina á fimmtudagskvöldið og styðja stelpurnar.