Yfirlýsing

Knattspyrnufélagið Valur og Guðjón Pétur Lýðsson hafa komist að samkomulagi um að rifta leikmannasamningi sem í gildi er á milli félags og leikmanns.

Knattspyrnufélagið Valur þakkar Guðjóni Pétri fyrir framlag hans og þjónustu við félagið undanfarin ár og óskar honum alls hins besta í framtíðinni. Félagið er stolt af þeim framförum sem Guðjón Pétur hefur tekið á meðan hann hefur verið í Val og gaman hefur verið fylgjast með honum vaxa og dafna.

Guðjón Pétur þakkar Knattspyrnufélaginu Val fyrir þann tíma sem hann var í röðum félagsins og þau tækifæri sem félagið hefur gefið honum.  Öll umgjörð, aðstaða og allt í kringum þjálfun hefur verið til fyrirmyndar og yfirgefur Guðjón Pétur félagið með góðar minningar.

Samkomulag þetta er gert í bróðerni og óska báðir aðilar hvor öðrum alls hins besta í framtíðinni.

Knattspyrnufélagið Valur og Guðjón Pétur Lýðsson