Fréttatilkynning frá stjórn handknattleiksdeildar Vals

Fréttatilkynning frá stjórn handknattleiksdeildar Vals
 

Reykjavík
8. febrúar 2013


Stjórn handknattleiksdeildar Vals hefur tekið ákvörðun um að Patrekur Jóhannesson, þjálfari meistaraflokks karla, láti af störfum fyrir félagið. Þessi ákvörðun er tekin með hagsmuni liðsins og Vals að leiðarljósi.
 
Stjórn handknattleiksdeildar vill einnig koma á framfæri þakklæti til Patreks fyrir hans starf í þágu félagsins og óska honum velfarnaði í starfi á nýjum vettvangi.
 
Framundan er mikilvægur tími fyrir lið meistaraflokks félagsins og mun Heimir Ríkharðsson stýra liðinu til loka tímabilsins.
 
 
Með vinsemd og virðingu,
stjórn handknattleiksdeildar Vals