Lengjubikar karla, sigur gegn ÍA

Laugardaginn 16.febrúar var fyrsti leikurinn í Lengjubikarkeppni karla í knattspyrnu. Leikið var á skipaskaga gegn heimamönnum í ÍA. Leikurinn endaði 1-3 fyrir Val en bæði lið misstu mann af velli með rautt spjald. Fyrir Val skoruðu Kolbeinn Kárason, Stefán Ragnar Guðlaugsson og Þórir Guðjónsson. Haukur Páll þurfti að fara meiddur af velli á 26 mínútu og inn á í hans stað kom Skotinn Iain Williamson í fyrsta leik sínum fyrir Val.