Valsstúlkur Reykjavíkurmeistarar í fótbolta

Valsstúlkur tryggðu sér í kvöld endanlega Reykjavíkurmeistaratitlinn í knattspyrnu eftir 4-0 sigur gegn Þrótti. Liðið fór í gegnum keppnina taplaust og er þetta annar titil þeirra á stuttum tíma en þær voru Futsal meistarar fyrir skemmstu. Svo sannarlega flott byrjun hjá stelpunum undir stjórn Helenu og Þorleifs.