U17 og U19 karla í knattspyrnu

Um komandi helgi verða úrtaksæfingar hjá U17 og U19 karl og verða æfingar í Kórnum og Egilshöll. Við hjá Val eigum okkar fulltrúa í þessum hópum. Í U17 ára hópnum hafa Darri Sigþórsson og Sindri Scheving verið valdir og í U19 ára hópinn var Marteinn Högni Elíasson kallaður til.

Við óskum drengjunum að sjálfsögðu góðs gengis.