Þakklæti til Fúsa - pistill

Þriðjudaginn 3. ágúst 1948 keppti 26 ára gamall maður, Sigfús Sigurðsson, í kúluvarpi á Ólympíuleikunum í London.  Í forkeppninni kastaði hann 14,49 m og var í hópi þeirra 12 sem komust í úrslit.  En enginn Íslendingur náði svo langt á Ólympíuleikunum í London.  Rétt um 60 árum síðar stóð barnabarn og alnafni kúluvarparans á palli í Ólympíuleikunum í Peking með silfurverðlaun um hálsinn fyrir eitt fræknasta íþróttaafrek sem íslenskt íþróttalið hefur náð.  Við munum öll eftir Fúsa og þessum frábæru afreksmönnum sem stóðu á verðlaunapalli í Peking 2008.

En hvernig og hvenær munum við eftir Fúsa?  T.d. sem

  • stórum bangsalegum strák í Hlíðunum.
  • sigurvegara (með Óla Stefánss.) í fyrsta götuboltamóti í körfu (tveir á tvo).
  • línumanni og varnarjaxli í Valsliðinu.
  • atvinnumanni með Magdeburg í Þýskalandi.
  • atvinnumanni með Caja Cantabria og Ademar Leon á Spáni.
  • atvinnumanni með Emstetten.
  • landsliðsmanni í 162 landsleikjum þar sem hann skoraði 316 mörk.
  • þjálfara stelpna og stráka í yngri flokkum Vals.
  • í tilsögn um fjölbreytt og hollt mataræði til yngri krakka í handbolta.
  • með ábendingar um heilbrigðan lífsstíl til yngri iðkenda.
  • tíðum gesti í grunnskólum Valshverfisins til að kynna handboltann í Val.
  • gesti í grunnskólum víða um land til að hvetja krakka til íþróttaiðkunar.
  • fulltrúa HSÍ í skólaheimsóknum til að breiða út handbolta.
  • liðsmanni í heimsliðinu 2009.
  • leiðbeinanda, gestaþjálfara og fyrirlesara á handboltanámskeiðum út um allt land

Ekki ætla ég að skrifa minningargrein um þann góða dreng þó svo að hann standi á tímamótum.  Fúsi hefur spilað sinn síðasta leik en hefur vitaskuld hvorki sagt skilið við Val né handboltann.  Fúsi þjálfar stelpurnar í 5. flokki en þess utan er hann í námi í íþróttafræði í Háskólanum í Reykjavík.  Hann er því augljóslega ekki að hverfa úr íþróttunum.  En það var vel til fundið hjá stjórn handknattleiksdeildar að kveðja Fúsa í hálfleik í gærkvöldi og gefa okkur stuðningsmönnum færi á því að þakka honum á vellinum.

Um leið og við óskum Fúsa alls hins besta á þessum tímamótum þá þökkum við fyrir allt hans framlag á handboltavellinum bæði með Val og íslenska landsliðinu.  Það er búið að vera frábært að fylgjast með þér í gegnum árin.


Sigurður Ásbjörnsson