Guðný Jenný framlengir við Val

Guðný Jenný Ásmundsdóttir markvörður meistaraflokks kvenna í handbolta hefur skrifað undir nýjann tveggja ára samning við Val. það eru mikil gleðitíðindi að Jenný hafi skrifað undir tveggja ára samning við félagið enda einn besti markvörður landsins og margreynd landsliðskona. Jenný hefur verið einn besti leikmaður N1 deildar kvenna í ár og þá var hún t.d. valin íþróttamaður Vals um áramótin. Jenný er frábær fyrirmynd og mikið gleðiefni að hún verði í röðum Vals næstu tvö árin.