Þakkir frá handboltanum

Stjórn handknattleiksdeildar vill koma á framfæri þökkum til allra Valsara sem fjölmenntu og studdu drengina gegn Aftureldingu í gær. Sigurinn var ekki síst fyrir stuðning áhorfenda og biðla leikmenn og stjórn til Valsara að fjölmenna líka á umspilið hjá strákunum og úrslitakeppnina hjá stelpunum sem hefst eftir páska.