Svava Rós endurnýjar samning

Rétt fyrir páska skrifaði Svava Rós Guðmundsdóttir undir nýjan 2 ára samning við Val.

Þessi 17 ára leikmaður hefur þrátt fyrir ungan aldur spilað yfir 20 leiki fyrir meistaraflokk Vals og á þar að auki að baki fjölda leikja fyrir yngri landslið Íslands.

Sannarlega góðar fréttir fyrir Val og væntum við mikils af Svövu í framtíðinni.