Fimm úr Val og Jenný best

Í hádeginu í dag miðvikudaginn 3.apríl var lið síðari hluta N1 deildar kvenna valið. Fjórir leikmenn úr deildarmeistaraliði Vals í handknattleik kvenna voru valdir í liðið og þjálfari Vals Stefán Arnarson var valinn besti þjálfarinn þannig að Valur á fimm í úrvalsliðinu.

Leikmennirnir eru Guðný Jenný, Dagný Skúladóttir, Þorgerður Anna Atladóttir og Karólína Bæhrenz Lárudóttir. Guðný Jenný Ásmundsdóttir var jafnframt valinn besti leikmaður síðari hluta deildarkeppninnar, en hún var einnig valin besti leikmaðurinn í fyrri hlutanum.