Íþróttaskóli Vals - vor 2013

Fyrri ákvörðun okkar um að fresta Íþróttaskólanum hefur verið endurskoðuð og það er mér sönn ánægja að tilkynna það að ákveðið hefur verið að hefja Íþróttaskóla Vals laugardaginn 13.apríl klukkan 9:40 á Hlíðarenda.

Það er opið fyrir skráningu á námskeiðið og við hvetjum alla sem áhuga hafa að mæta með börnin.

Skráning fer fram á heimasíðu Vals eða hjá Viðari Íþróttafulltrúa í síma 414-8005 eða með tölvupóst á vidar@valur.is