Þorgerður Anna framlengir hjá Val

Handknattleikskonan Þorgerður Anna Atladóttir hefur skrifað undir 2.ára samning við handknattleiksdeild Vals. Þorgerður Anna hefur verið einn besti leikmaður liðsins og máttarstólpi. Þetta eru mikil gleðitíðindi og frábærar fréttir fyrir alla Valsara.