Valur í Domino´s deild karla

Valsmenn tryggðu sér í gærkvöldi síðasta lausa sætið í Domino´s deild karla eftir glæsilegan útisigur á Hamri í Hveragerði. Leikurinn var jafn og spennandi en Valsmenn þó með frumkvæðið og í hálfleik var staðan 31-43 fyrir Val en lokatölur voru 74-80 og Valsmenn því í efstu deild í vetur.