5.flokkur Íslandsmeistarar

Valur Íslandsmeistari í 5. flokki karla í handbolta

 

Valur hélt norður til Akureyrar föstudaginn 12. apríl síðastliðinn til þess að keppa á fjölliðamóti í handbolta. Til leiks voru send þrjú lið frá 5. flokki karla (drengir fæddir 2000). Þetta var fimmta og jafnframt síðasta mót vetrarins hjá þessum árgangi og hafði verið háð mikil barátta yfir veturinn þar sem Valsarar höfðu sigrað tvö mót fram að þessu og Fjölnir hafði sigrað tvö. Það var því um hreint úrslitamót að ræða hvort liðið mundi hampa titlinum árið 2013.

Það var lagt af stað frá Vodafonehöllinni snemma á föstudagsmorgun þar sem liðin áttu að spila seinnipart föstudagsins. Ferðin norður gekk mjög vel og voru allir krakkarnir mjög stilltir og prúðir. Leikið var á föstudag, laugardag og sunnudag. Strákarnir tefldu fram, eins og kom fram hér að ofan, þremur liðum og voru því 14 leikir yfir helgina svo það var í miklu að snúast hjá þjálfurum flokksins.

Valur 3 lék í 3. deild B-riðli og kepptu þeir fjóra leiki yfir helgina. Þeir sigruðu tvo leiki og töpuðu tveimur leikjum, þar sem þeir spiluðu við gríðarlega öflug lið. Sigrarnir þeirra voru hinsvegar gríðarlega sterkir og spiluðu þeir mjög vel og enduðu í 3. sæti í deildinni.

Valur 2  lék í 3. deild A-riðli og kepptu þeir fimm leiki yfir helgina. Þeir sýndu oftar en ekki gríðarlega flotta spilamennsku og sigruðu þrjá af leikjum sínum en töpuðu tveimur. Niðurstaðan var því 3. sæti í deildinni.

Valur 1 lék í 1. deild og keppti líka fimm leiki yfir helgina. Þeir gátu tryggt sér titilinn með sigri á mótinu og ákváðu þeir að spila frábærlega í nánast öllum leikjunum sínum og endaði mótið því þannig að þeir töpuðu ekki leik, sigruðu fjóra af leikjum sínum en gerðu eitt jafntefli. Það dugði til að sigra deildina og tryggja titilinn á Hlíðarenda. Það var því þriðja árið í röð sem þessir piltar vinna sér inn Íslandsmeistaratitilinn.

Það er því nokkuð ljóst að framtíðin er björt hjá Val og þarf að halda vel utan um yngriflokkastarfið líkt og hefur verið gert undanfarin ár vegna þess að upp eru að koma þvílíkir snillingar og frábærir handboltamenn allir sem einn. Þetta er framtíðin sem mun vinna inn titla fyrir meistaraflokk Vals áður en við vitum af.

Við viljum því þakka fyrir að hafa verið með þessa stráka í vetur, það eru forréttindi að þjálfa svona meistara hjá svona flottum klúbbi sem Valur er.

 

Takk fyrir,

kv. Þjálfarar, Gunnar Ernir og Maksim Akb.