Valshlaupið 17.maí

Föstudaginn 17. maí verður Valshlaupið haldið í þriðja sinn og hefst hlaupið kl 18:30 við Valsheimilið að Hlíðarenda.

Vegalengdir
3 km og 10 km. Bæði hlaupin ræst samtímis. Sömu hlaupaleiðir og í hlaupinu fyrri ár þar sem allmargir hafa náð sínum bestu tímum enda brautirnar mjög góðar til bætinga.

Þátttökugjald

  • Fæddir 1995 og síðar 500 kr í forskráningu en 1.000 kr á keppnisdegi.
  • Fæddir 1994 og fyrr 1.000 kr í forskráningu en 1.500 kr á keppnisdegi.
  • Fjölskyldugjald 2.000 kr, aðeins í forskráningu á Hlíðarenda á fimmtudeginum fyrir hlaupið frá kl. 17:00-20:00.

Nánari upplýsingar og skráningu má sjá hérna http://www.hlaup.is/displayer.asp?cat_id=5&module_id=220&element_id=24152