Lengjubikar karla og kvenna í knattspyrnu

Lengjubikarinn er í fullum gangi og eiga bæði karla og kvennalið félagsins leiki í vikunni. Fimmtudaginn 18.apríl kl.19:00 eigast við í 8.liða úrslitum Valur og Fylkir í karlaflokki og á föstudag kl.19:00 eigast við Valur og Breiðablik í kvennaflokki. Báðir leikir fara fram í Egilshöll.