2.flokkur Vals í 4.liða úrslit

2.flokkur Vals er kominn í 4.liða úrslit íslandsmótsins eftir frækilegan sigur á liði Akureyrar fyrir norðan.

Leikurinn var háspennuleikur í boði dómara leiksins en okkar drengir leiddu allan leikinn og áttu sigurinn svo sannarlega skilið og að vera komnir á þennan stað. Ekki er annað hægt en að minnast á þrumufleyga í boði Alexanders og Agnars, Bjartur stjórnaði miðjunni eins og herforingi og frábær markvarsla hjá Sigga sem lokaði rammanum á tímabili.

Næst leikur er við FH (ekki komin dagsetning) og ef okkar drengir spila líkt og fyrir norðan eru allir vegir færir að klára mótið.