Ólafur Stefánsson og Claes Hellgren á landinu.

Hinn nýji þjálfari meistaraflokks Vals Ólafur Stefánsson kom til landsins í dag og verður með æfingar fram yfir helgi. Ásamt Ólafi kom hinn kunni markmannsþjálfari Claes Hellgren og sá hann um þjálfun í dag ásamt Ólafi og mun Claes einnig vera með tvær æfingar á morgun og svo mun Ólafur vera með æfingar föstudag til sunnudags. Spennandi tímar framundan.