Lengjubikar kvenna og karla - Úrslitaleikir

Laugardaginn 27.apríl og sunnudaginn 28.apríl fara fram úrslitaleikirnir í Lengjubikar kvenna og karla. Valur er með bæði lið í úrslitum og fara leikirnir fram á Samsungvellinum í Garðabæ. Í kvennaflokki mætast á sunnudag Valur og Stjarnan og hefst leikurinn kl.14:00. Í karlaflokki mætast á laugardag Valur og Breiðablik og hefst sá leikur kl.16:00