Geir Guðmunds og Guðmundur Hólmar til Vals

Tveir ungir og efnilegir leikmenn Akureyrar Geir Guðmundsson og Guðmundur Hólmar Helgason eru gengnir til liðs við Val á lánssamningi til eins árs. Þetta er mikill happafengur fyrir okkur Valsmenn enda framtíðar landsliðsmenn og eiga eflaust eftir að bæta sig enn frekar í herbúðum okkar undir stjórn Ólafs Stefánssonar og Ragnars Óskarssonar. 

Mikil reynsla í efstu deild fylgir drengjunum enda búnir að spila undanfarin ár í meistaraflokk og skoruðu báðir um 90 mörk í deildinni í ár. Við bjóðum Geir og Guðmund Hólmar velkomna að hlíðarenda og mikill heiður að fá enn einn akureyringinn í okkar raðir enda verið þeirri lukku njótandi að ófáir norðanmenn hafi komið til liðs við Val í gegnum tíðina og eðal drengir allir sem einn.