Hreinsunardagur

Nú ætla Valsmenn og-meyjar að storma á Hlíðarenda miðvikudaginn 1. maí kl. 09:00 - 14:00 til að hreinsa, fegra og bæta umhverfið okkar.

Ætlar þú ekki örugglega að vera með ?

Það getur enginn Valsmaður með sjálfsvirðingu misst af þessum einstæða viðburði. Nú getur þú fengið útrás og nýtt kraftana í að gera Hlíðarenda að betri og hreinni stað fyrir gesti og gangandi.

Þú mætir og tekur alla fjölskylduna með, ÞIÐ fáið góða útiveru og gerið félaginu ykkar gagn. Hlökkum til að taka á móti fjölda Valsara og hreinsa,fegra og bæta Hlíðarenda fyrir sumarið.

Nefndin.