Björk Björnsdóttir í Val

Markmaðurinn Björk Björnsdóttir hefur gengið til liðs við Val.

Þessi 24 ára gamli markmaður hefur spilað 98 leiki í efstu deild og bikar. Hún kemur til Vals frá Noregi þar sem að hún spilaði með Avaldsnes við góðan orðstír á síðasta ári.

Sannarlega góður liðsstyrkur fyrir okkar frábæra lið og styrkir hópinn fyrir komandi átök í sumar.

Við bjóðum Björk velkomna i Val og óskum henni og hennar liðsfélögum góðs gengis í sumar.