Orri Freyr og Atli Már framlengja til tveggja ára

Orri Freyr Gíslason og Atli Már Báruson hafa framlengt samninga við handknattleiksdeild Vals til tveggja ára. Orri Freyr kom aftur til félagsins í janúar eftir að hafa spilað með Viborg í Damnörku undir stjórn Óskars Bjarna og styrkti hópinn verulega í baráttunni um að halda sér í deildinni. Atli er valsmönnum kunnugur fyrir endalausa baráttu og hefur sýnt það að í honum býr framtíðar leikmaður félagsins og á klárlega eftir að bæta sig enn frekar undir stjórn nýja þálfarateymisins.