Rúnar Már kemur til baka úr láni frá Zwolle

Rúnar Már spilar með Valsmönnum í sumar. Rúnar hefur verið á láni hjá Zwolle í Hollandi og hefur verið kallaður til baka. Búið er að ganga frá félagaskiptum og er hann komin með leikheimild. Þetta eru að sjálfsögðu miklar gleðifréttir fyrir okkur Valsmenn enda var Rúnar einn af allra bestu mönnum Pepsi deidlarinnar í fyrra.