Elvar Friðriks kominn heim.

Elvar Friðriksson hefur ákveðið að snúa aftur í heimahaga og hefur skrifað undir tveggja ára samning við Val. Elvar er Valsmönnum kunnugur enda uppalinn að Hlíðarenda en hefur spilað með Hammarby í Svíþjóð síðustu ár og staðið sig einkar vel. Þetta er mikill hvalreki fyrir okkur Valsmenn og greinilegt að við munum mæta með feikna sterkt lið á komandi leiktíð.