Dagný valin best

Á lokahófi HSÍ voru leikmenn heiðraðir fyrir veturinn og áttum við Valsmenn okkar fulltrúa þar. Dagný skúladóttir var valin besti leikmaður N1 deildar kvenna og Stefán Arnarson besti þjálfarinn í N1 kvenna. Guðný Jenny fékk Sigríðarbikarinn og var valin í lið ársins í N1 kvenna ásamt Dagný og Þorgerði Önnu. Sannarlega glæsilegur árangur hjá okkar fólki.