Valur - Fram í Pepsídeild karla
Fimmtudaginn 16.maí kl.19:15 er fyrsti heimaleikur okkar manna á Vodafonevellinum og er það Fram sem kemur í heimsókn. Valsarar hafa byrjað mótið vel á tveimur útisigrum og eru með 6 stig en Fram hefur 4 stig eftir sigur á Víking Ólafsvík í fyrstu umferð og jafntefli gegn Fylki í 2 umferð. Við hvetjjum alla Valsara til að fjölmenna á fyrsta heimaleik sumarsins og hvetja sína menn.
Fálkarnir munu sem fyrr standa vaktina og grilla ofan í gesti
gæða pylsur og hamborgara frá Kjarnafæði og síðan verður
hálfleikskaffi fyrir árkortshafa.
Minnum á að sala árskorta er hafin og kostar árskort sem gildir á
alla heimaleiki karla-og kvenna í knattspyrnu kr.14.000.- Einnig er
til sölu Valskort sem gildir á alla heimaleiki karla-og kvenna í
öllum deildum og kostar það einungis kr.25.000.-