Stefán Arnarson framlengir

Það er handknattleiksdeild mikil ánægja að tilkynna að Stefán Arnarson þjálfari meistaraflokks kvenna er búinn að framlengja samning sinn við Val um tvö ár. Stefán hefur stýrt liðinu undanfarin ár og liðið verið afar sigursælt undir hans stjórn.