Valur - ÍBV í Pepsídeild kvenna

Laugardaginn 18.maí taka Valskonur á móti sprækum Eyjaskvísum úr ÍBV í Pepsídeild kvenna. Leikurinn fer fram á okkar heimavelli og hefst kl. 14:00. Við hvetjum alla Valsara til að fjölmenna og styðja stelpurnar. Fálkarnir verða á sínum stað og grilla gómsætar pylsur og geggjaða hamborgara frá Kjarnafæði fyrir gesti og gangandi.