Anna Úrsúla og Karólína framlengja við Val

Það eru gleðitíðindi að greina frá því að handknattleiksdeild Vals er búin að framlengja samninga við Önnu Úrsúlu Guðmundsdóttur og Karólínu Bæhrenz Lárudóttur. Þær stöllur hafa spila stórt hlutverk í liði Vals undanfarin ár og verið máttarstólpar. Þetta eru frábærar fréttir fyrir alla Valsara og ljóst að lið Vals verður sterkt á næta tímabili.