Jafntefli í Garðabæ

Valsmenn sóttu gott stig í Garðabæ í fjórðu umferð Pepsídeildar karla er Stjörnumen voru sóttir heim. Lokatölur voru 1-1 eftir að Stjarnan komst yfir í fyrri hálfleik en Bjarni Ólafur Eiríksson jafnaði metin í síðari hálfleik með glæsilegu marki. Bæði lið áttu ágætis færi til að klára leikinn, en niðurstaðan var jafntefli og gott stig á útivelli fyrir okkur Valsmenn.

 Nánari umfjöllun og samantekt um leikinn má finna hér http://valsarar.net/