Ægir Hrafn í Val

Varnartrölið og línumaðurinn Ægir Hrafn Jónsson hefur skrifað undir 2.ára samning við handknattleiksdeild Vals. Ægir er Valsmönnum kunnugur enda spilaði hann með félaginu til ársins 2009 er hann færði sig um set og spilaði með Gróttu og svo nú síðast með Fram.

Við bjóðum Ægi velkominn heim og er hann fjórði leikmaðurinn sem bætist í sterkan hóp Vals fyrir komandi tímabil.