Ungir og efnilegir skrifa undir í handboltanum

Daði Laxdal Gautason endurnyjaði í dag samning sinn við Val til tveggja ára. Daði er einn af okkar efnilegu leikmönnum sem hefur verið viðloðandi meistaraflokk og spilað stórt hlutverk í 2.flokki s.l. tvö ár. Daði er vinstri skytta sem hefur leikið með öllum yngri landsliðum Íslands.

 

Þá hefur Valdimar Sigurðsson einnig endurnyjað samning sinn til tveggja ára, Valdi er línumaður og hefur vaxið mikið á síðustu árum og spilað stórt hlutverk með 2.flokki ásamt því að hafa spilað sig inn í U-19 ára landsliðið Íslands.

 

Þessir drengir eru ásamt fleiri uppöldum leikmönnum félagsins svo sannarlega í framtíðarplönum Vals og Ólafs Stefánssonar.

 

Handknattleiksdeild Vals óskar þessum flottu strákum til hamingju með samninginn.