Góður sigur á Keflavík

Valsmenn unnu góðann heimasigur á Keflavík í gærkvöldi en lokatölur voru 4-0 eftir að staðan í hálfleik var 1-0, líkt og í báðum leikjum í fyrra.

Leikurinn byrjaði fjörlega og skiptust liðin á að sækja en Valsmenn stýrðu ferðinni. Það var fyrirliðinn okkar Haukur Páll sem skoraði fyrsta markið eftir hornspyrnu Rúnars Más og þannig var staðan í hálfleik.

Í síðari hálfleik tóku Valsmenn öll völd á vellinum og bættu við þremur mörkum. Rúnar Már skoraði tvívegis og Kolbeinn Kárason bætti við fjórða markinu. Öruggur sigur okkar manna og Valsmenn taplausir í þriðja sæti í Pepsídeildinni eftir fimm umferðir.