Uppskeruhátíð yngriflokka

Þá fer tímabilinu 2012/2013 í handbolta og körfubolta að ljúka og við munum að sjálfsögðu enda veturinn með uppskeruhátíð.

Uppskeruhátíðin er á morgun, 30.maí og við byrjum með handboltaiðkendum klukkan 16:00 og stefnum á að ljúka þeirri dagskrá klukkan 17:30. Í framhaldi munum við heiðra körfuboltaiðkendurna og hefst sú veisla klukkan 18:00 og mun standa til klukkan 19:30.

Við hvetjum alla foreldra til að mæta á svæðið.