Hannes Jón leikmaður þýsku 2.deildar

Hannes Jón Jónsson fyrrum leikmaður Vals var í dag valinn leikmaður þýsku 2. deildarinnar og er lið hans Eisenach nánast komið upp í deild hinna bestu í þýskalandi. Hannes hefur skorað 145 mörk i deildinni eða að meðaltali 6,3 mörk í leik og hefur átt mikinn þátt í velgengni liðsins. Eisenach yrði þó ekki fyrsta liðið sem Hannes fer upp um deild með enda var hann í liði Hannover er það vann sér sæti í úrvalsdeildinni um árið.

Við óskum Hannesi til hamingju með valið og vonum svo sannarlega að lið hans klári dæmið og spili meðal hinna bestu næsta tímabil.