Valur - ÍBV Pepsídeild karla

Í dag, þriðjudaginn 18.júní fer fram leikur Vals og ÍBV í Pepsídeild karla á Vodafonevellinum. Leikurinn hefst klukkan 18:00 en fyrir leik verður heiðruð minning Hermanns Gunnarssonar með smá athöfn.

Ársmiðahöfum er boðið í kaffi fyrir leik kl.17:00, Magnús Gylfason þjálfari Valsmanna mætir og talar um stöðuna og leikinn við ÍBV.

Heiðursgestir verða systkini Hemma og börnin hans.

Að sjálfsögðu verða Fálkar með grill á leiknum og við hvetjum alla til að mæta, styðja við bakið á okkar mönnum og heiðra minningu Hemma Gunn.

ALLIR Á VÖLLINN OG EKKERT STRESS, VERUM HRESS.

Áfram Valur