James Hurst yfirgefur Val

James Hurst leikur sinn síðasta leik með Val á móti FH næstkomandi sunnudag. Hurst sem kom til Vals rétt fyrir mót mun ganga til liðs við enskt lið og hafa aðilar komist að samkomulagi sín á milli. Hurst hefur mjög vel spilað með Val í sumar og skorað tvö mörk. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Hurst spilað fyrir ein fimm ensk lið og má þar nefna WBA og Birmingham. Valsmenn þakka Hurst fyrir tímann hjá Val og óskum við honum velfarnaðar hjá nýju liði.

 

Stjórn knattspyrnudeildar Vals