Valur - Stjarnan í Borgunarbikarnum

Í kvöld fer fram stórleikur í Borgunarbikarnum þegar kvennalið Vals og Stjörnunar mætast á Hlíðarenda klukkan 19:15.

Nú verða allir Valsarar að taka höndum saman og mæta á svæðið og styðja við bakið á stelpunum. Þær þurfa á okkar stuðning að halda.

Fálkar munu að sjálfsögðu vera með grillið góða í gangi.

ÁFRAM VALUR