Kristín Guðmunds endurnýjar samning

Kristín Guðmundsdóttir hefur endurnýjað samning sinn við handknattleiksdeild Vals til eins árs. Kristín hefur verðið ein af máttarstólpum meistaraliðs kvenna undanfarin ár og einn reynslumesti leikmaður deildarinnar og mun styrkja hópinn mikið.

Kvennalið Vals verður vel skipað á komandi tímabili og á eflaust eftir að sækja titla líkt og undanfarin ár og verður gaman að fylgjast með liðinu.