Rúnar Már til Sundsvall

Einn besti leikmaður okkar Valsmanna gekk í dag í raðir sænska liðsins GIF Sundsvall. Rúnar Már hefur verið í okkar röðum undafarin ár og vaxið jafnt og þétt sem leikmaður og var valinn í íslenska landsliðið á síðasta ári og skoraði m.a. í sínum fyrsta landsleik.

Það hefur verið ánægjulegt að fylgjast með framgangi og þróun Rúnars og er þetta næsta skref á vonandi löngum ferli hans sem knattspyrnumanns. Um leið og við þökkum Rúnari Má kærlega fyrir hans tíma og framlag hér á Hlíðarenda, óskum við honum áframhaldandi velgengni og velfarnaðar á nýjum vígstöðvum.